
Þjónusta Nokia
Á www.nokia.com/support eða á vefsvæði Nokia í heimalandi þínu geturðu athugað
með nýjustu útgáfu þessarar handbókar, frekari upplýsingar, hluti til niðurhals og
þjónustu fyrir Nokia vöruna þína.
Stillingaþjónusta
Þú getur sótt ókeypis stillingar t.d. fyrir MMS, GPRS, tölvupóst og aðra þjónustu fyrir
símann þinn á www.nokia.com/support.
Nokia PC Suite
PC Suite og tengdar upplýsingar er að finna á vefsvæði Nokia á www.nokia.com/
support.
Nokia Care þjónusta
Ef þú þarft að hafa samband við Nokia Care þjónustuna skaltu skoða
lista yfir Nokia Care þjónustuver á þínu svæði á www.nokia.com/
customerservice.
Viðhald
Upplýsingar um viðhaldsþjónustu fást hjá næsta Nokia Care þjónustuveri á
www.nokia.com/repair.
Almennar upplýsingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
8

2. Tækið tekið í notkun
SIM-kort og rafhlaða sett í
Rafhlaða fjarlægð
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
SIM-kortið og snertur þess geta hæglega skemmst ef kortið rispast eða bognar. Því þarf
að fara varlega með kortið þegar það er sett í eða tekið úr.
1. Ýttu bakhlið símans niður ofan frá og fjarlægðu hana (1).
2. Fjarlægðu rafhlöðuna (2) og settu SIM-kortið (3) í.
3. Settu rafhlöðuna á sinn stað (4) og bakhliðina aftur á (5).
Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan þín er forhlaðin en hleðslustig getur verið breytilegt.
1. Tengdu hleðslutækið við innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið við tækið. Þú getur notað tækið meðan það
er í hleðslu.
3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu aftengja hleðslutækið frá
tækinu, síðan taka úr sambandi í innstungunni.
Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Loftnet
Í tækinu kunna að vera innri og ytri loftnet. Líkt og gildir um öll önnur
tæki sem senda eða taka við útvarpsbylgjum ætti að forðast að snerta
loftnetið að óþörfu við móttöku eða sendingu útvarpsbylgna. Snerting
við slíkt loftnet hefur áhrif á sendigæði og getur valdið því að tækið noti