
Lykilorð
Öryggisnúmerinu er ætlað að hindra að síminn þinn sé notaður í leyfisleysi. Þú getur
búið til og breytt númerinu og stillt símann á að biðja um númerið. Haltu númerinu
leyndu og á öruggum stað fjarri símanum. Ef þú gleymir númerinu og síminn þinn er
læstur mun hann þarfnast þjónustu og getur það haft viðbótargjald í för með sér. Frekari
upplýsingar fást hjá Nokia Care eða söluaðila símans.
PIN-númerið, sem fylgir SIM-kortinu, ver kortið fyrir notkun án heimildar. PIN2-númerið,
sem fylgir sumum símum, er nauðsynlegt til að komast í tiltekna þjónustu. Ef þú slærð
inn rangt PIN- eða PIN2-númer þrisvar sinnum í röð þarftu að slá inn PUK- eða PUK2-
númerið. Ef þau fylgja ekki SIM-kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna.
PIN-númer öryggiseiningar er nauðsynlegt til að fá aðgang að upplýsingum í
öryggiseiningunni. PIN-númer undirskriftar kann að vera nauðsynlegt til að nota
stafrænu undirskriftina. Slá þarf inn lykilorð útilokunar þegar útilokunarþjónustan er
notuð.
Hægt er að velja hvernig síminn notar aðgangsnúmer og öryggisstillingar í Valmynd >
Stillingar > Öryggis-stillingar.