
Pakkagögn
GPRS-tækni (General Packet Radio Service) er sérþjónusta sem gerir farsímanotendum
það kleift að senda og taka á móti gögnum um net sem byggir á
Internetsamskiptareglum (Internet Protocol, IP).
Tilgreint er hvernig þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >
Tengi-möguleikar > Pakkagögn > Pakkagagnatenging og svo úr eftirfarandi
valkostum:
● Þegar þörf er — til að koma á tengingu þegar forrit þarf á henni að halda.
Tengingunni er lokað um leið og forritinu.
● Sítenging — til að tengjast sjálfkrafa við pakkagagnakerfi þegar kveikt er á
símanum
Hægt er að nota símann sem mótald með því að tengja hann við tölvu með Bluetooth.
Nánari upplýsingar er að finna í þeim gögnum sem fylgdu með Nokia PC Suite.