
Takkalás
Til að koma í veg fyrir að ýtt sé á takkana í ógáti, lokarðu símanum og velur Læsa innan
5 sekúndna til að læsa tökkum símans (takkaborðinu).
Til að aflæsa takkaborðinu skaltu velja Úr lás > Í lagi, eða opna símann. Ef kveikt er á
öryggistakkavaranum skaltu slá inn öryggisnúmerið þegar beiðni um það birtist.
Til að láta takkaborðið læsast sjálfkrafa eftir fyrirfram ákveðinn tíma, þegar síminn er í
biðstöðu, velurðu Valmynd > Stillingar > Síma-stillingar > Sjálfvirkur
takkavari > Virkur.
Ýtt er á hringitakkann til að svara símtali þegar takkaborðið er læst. Þegar lagt er á eða
símtali er hafnað læsist takkaborðið sjálfkrafa.
Þegar tækið eða takkaborðið er læst kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.