
Tengiliðir
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
16

Til þess að bæta við tengilið velurðu Nöfn > Valkost. > Bæta við tengilið. Til að bæta
upplýsingum við tengilið skaltu tryggja að minnið í notkun sé annað hvort Sími eða Sími
og SIM. Veldu Nöfn, flettu að nafni og veldu Upplýs. > Valkost. > Bæta við
upplýs..
Til að leita að tengilið velurðu Nöfn og flettir í gegnum tengiliðalistann eða slærð inn
fyrstu stafina í nafninu.
Til að afrita tengilið á milli minnis símans og SIM-kortsins velurðu Nöfn, flettir að
tengiliðnum og velur Valkost. > Afrita tengilið. Í minni SIM-kortsins er aðeins hægt
að vista eitt símanúmer með hverju nafni.
Til að velja SIM-kortið eða minni símans fyrir tengiliði, velja hvernig nöfn og símanúmer
tengiliða birtast, og til að skoða hversu mikið minni er laust fyrir tengiliði velurðu
Stillingar.
Hægt er að senda og taka við tengiliðaupplýsingum einstaklings sem nafnspjaldi úr
samhæfu tæki sem styður vCard-staðalinn. Til að senda nafnspjald velurðu Nöfn, leitar
að þeim tengilið sem þú ætlar að senda upplýsingar um og velur Upplýs. > Valkost. >
Senda nafnspjald.
8. Símtalaskrá
Til að skoða upplýsingar um símtöl velurðu Valmynd > Notkunarskrá. Eftirfarandi
valkostir kunna að vera í boði:
● Öll símtöl — til að skoða símtöl sem þú misstir nýlega af eða svaraðir og númer sem
hringt var í í tímaröð
● Ósvöruð símtöl, Móttekin símtöl eða Hringd símtöl — til að skoða upplýsingar
um síðustu símtölin þín
● Viðtakendur skilaboða — til að skoða þá tengiliði sem þú hefur nýlega sent
skilaboð til
● Lengd símtals, Gagnamælir pakkagagna eða Telj. pakkagagnateng. — til að
skoða almennar upplýsingar um nýleg samskipti þín
● Skilaboðaskrá eða Samstillingaskrá — til að skoða fjölda sendra og móttekinna
skilaboða eða samstillinga
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að
vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga,
sköttum og öðru slíku.
9. Stillingar
Snið
Í símanum eru nokkrir stillingahópar sem kallaðir eru notandasnið. Með þeim er hægt
að velja hringitóna fyrir mismunandi tilvik og aðstæður.